Kalla þurfti út brunavarnir Suðurnesja um eitt leytið í dag vegna málmleka í kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík. Samkvæmt frétt Vísis var þó um að ræða töluvert minna óhapp en slökkviliðið hafði búist við. Í samtali við Vísi segir Ólafur Ingi Jónsson hjá slökkviliði Suðurnesja að ekki hafi þurft að slökkva í neinu. Starfsmenn hafi verið að „tappa af” og það hafi farið að leka með fram út á gólf.

Að sögn Ólafs hafi fljótandi málmur lekið út og hafi helsta hlutverk slökkviliðsins verið að tryggja öryggi og stöðva lekann. „Við notuðum málm til að stoppa lekann og síðan erum við bara að bíða eftir því að þetta minnki og kólni.”

Samkvæmt Ólafi stafaði engin hætta af lekanum og brugðist var rétt við slysisnu. Það hafi verið í allt í lagi með alla menn og allir hafi verið komnir á söfnunarpunkt þegar slökkvuliðið bar að garði. „ Þetta er auðvitað bara áhætta sem er hérna hjá okkur og við erum með ákveðið vinnufyrirkomulag í þessu,“ segir Ólafur.