Um 160 milljónum dala, jafnvirði nærri 19 milljarða króna, hefur verið eytt til að halda uppi vörnum fasteignalánafyrirtækjanna Fannie Mae og Freddie Mac og fyrrum yfirmanna þeirra. Þeir eru sakaðir um fjársvik. Kostnaður vegna málaferla lendir alfarið á skattgreiðendum, en bandarísk stjórnvöld yfirtöku félögin árið 2008.
NY Times greinir frá í dag. Upplýsingum um kostnaðinn hefur verið haldið leyndum en samkvæmt gögnum sem NY Times hafa undir höndum nemur kostnaður vegna fyrrum stjórnenda um 24,2 milljónum dala.