Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, afhjúpaði í gær málverk af Emil Jónssyni, fyrrverandi forseta sameinaðs Alþingis. Viðstödd var fjölskylda Emils, alþingismenn, fyrrverandi forsetar Alþingis og fleiri gestir. Að lokinni afhjúpun málverksins flutti Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur erindi um stjórnmálaferil Emils Jónssonar.

Fram kemur í tilkynningu frá Alþingi að Halldór Pétursson listmálari málaði myndina af Emil árið 1973. Málverkinu hefur verið komið fyrir í efrideildarsal. Alþingi átti fyrir portrettmyndir af öllum forsetum sameinaðs þings frá 1901, að Emil Jónssyni undanskyldum, og var málverkið gjöf frá ættingjum hans til Alþingis.

Emil Jónsson var forseti sameinaðs Alþingis 1956-1959. Hann sat á Alþingi í tæp 37 ár og gegndi ráðherrastörfum í tæp 18 ár. Emil Jónsson var einn fárra manna til að gegna oddvitastöðu löggjafar- og framkvæmdavalds er hann var um tveggja vikna skeið forseti sameinaðs Alþingis og forsætisráðherra Íslands samtímis.