Nýr varamaður hefur verið skipaður í stjórn félagsins Títan B, fjárfestingarfélags Skúla Mogensen.

Anna Skúladóttir er nú varamaður en hún er móðir Skúla. Margrét Ásgeirsdóttir, fyrrver­andi eiginkona Skúla, hættir sem varamaður í stjórn.

Tilkynn­ing um breytingu á stjórn félagsins var send til Fyrirtækjaskrár í lok maí. Skúli er sjálfur eini stjórnarmaður félagsins og framkvæmdastjóri þess. Félagið fer með 8,65% hlut Skúla í MP banka og er félagið fimmti stærsti hluthafi bankans ásamt félaginu S9 ehf. sem er í eigu fyrrverandi eiginkonu Skúla.