Skuldabréfavísitölur GAMMA hækkuðu mikið í ágúst. Hefur mánaðarhækkun ekki verið meiri síðan í maí 2009.

Skuldabréfavísitalan GAMMA:GBI hækkaði um 5,04% í ágúst en innan hennar eru bæði verðtryggð og óverðtryggð skuldabréf. GBI hefur hækkað um 14,85% á árinu. Hlutfall verðtryggðra bréfa er 72,5% í lok ágúst.

Skuldabréfavísitala óverðtryggðra bréfa hækkaði um 5,59% í ágúst og verðtryggðra um 3,64%.