Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra vottar suður-afrísku þjóðinni samúð sína fyrir hönd Íslands í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Þar segir:

„Í gærkveldi bárust þær fregnir að Nelson Mandela hefði látist eftir langvinn veikindi. Í mínum huga var Nelson Mandela táknmynd frelsis, vonar, mannúðar og fyrirgefningar og með fráfalli hans er ekki einungis genginn helsti leiðtogi Suður Afríku, heldur heimsbyggðarinnar allrar.

Minningin um Nelson Mandela og baráttu hans í þágu jafnréttis og mannréttinda mun ávallt lifa. Fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands og íslensku þjóðarinnar votta ég fjölskyldu og aðstandendum, ríkisstjórn Suður Afríku og suðurafrísku þjóðinni innilega samúð. Megi Nelson Mandela hvíla í friði.“