Veitingastaðurinn Mandi mun opna í Skeifunni á næstunni. Frá þessu er greint á vef Vísis .

Staðurinn mun vera staðsettur í rými sem áður hýsti útibú Hlölla báta. Eins og er er Mandi einungis staðsettur við Ingólfstorg í Reykjavík og hægt er að kaupa þar mið-austurlenskan mat á borð við kebab, hummus og falafel.

Á Facebook-síðu staðarins segir að það styttist óðum í opnunina. Hlölla bátar fóru úr Skeifunni þann 28. apríl síðastliðinn og opnuðu í staðinn nýjan stað í Mosfellsbæ.