Alls bjuggu 319.180 manns á Íslandi í lok annars ársfjórðungs 2011. Þar af voru 160.240 karlar og 158.940 konur. Erlendir ríkisborgarar voru 21.150. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.050 manns er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Nemar
Nemar
© None (None)
Á tímabilinu fæddust 1.130 börn og 470 einstaklingar létust. Þá fluttust 530 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 360 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 180 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Alls fluttust 980 íslenskir ríkisborgar af landi brott á öðrum ársfjóðungi. Flestir fluttust til Noregs eða 380 manns á tímabilinu. Þá fluttust 680 íslenskir ríkisborgarar til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Af þeim 800 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 280 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (270), Noregi (120) og Svíþjóð (80), samtals 470 manns af 620. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 170 af alls 620 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst en þaðan fluttust 40 erlendir ríkisborgarar til landsins.