Mannvit verkfræðistofa hefur opnað skrifstofu í Búdapest í Ungverjalandi.
Í tilefni opnunarinnar efndi Mannvit til ráðstefnu þar ytra undir yfirskriftinni „Græn orka“ þar sem fjallað var um nýjungar og tækifæri í orkumálum fyrir sveitarfélög og fyrirtæki í Ungverjalandi.
Jafnframt voru kynnt þau verkefni sem Mannvit hefur unnið að á sviði jarðhitanýtingar í Ungverjalandi undanfarin tvö ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mannvit.
Þar kemur fram að síðastliðin ár hefur Mannvit í auknum mæli litið til stærri markaða.
„Markmiðið er að tryggja stöðugan rekstur, dreifa áhættu og viðhalda góðum vexti,“ segir í tilkynningunni.
„Sókn erlendis verður áfram ofarlega á blaði á komandi árum en starfsemi Mannvits í Mið-Evrópu hefur vaxið vegna aukinna jarðvarmaverkefna, ekki síst í Ungverjalandi og Þýskalandi.“
Runólfur Maack, aðstoðarforstjóri Mannvits og yfirmaður erlendrar starfsemi fyrirtækisins, segir í tilkynningunni að það hefði legið beint við fyrir Mannvit að hefja hefðbundna ráðgjafarstarfsemi á Mið-Evrópumarkaði í Búdapest.
„Ungverjaland hefur mikla möguleika á nýtingu jarðhita og nú loks hefur orðið þar ákveðin vakning til að hagnýta hann,” er haft eftir Runólfi í tilkynningunni.