Verkfræðistofurnar VGK-Hönnun hf. og Rafhönnun hf. hafa verið sameinaðar undir nafninu Mannvit hf. Með sameiningunni verður til stærsta verkfræðistofa landsins með um 360 starfsmenn.

Grunn að hinu nýja félagi leggja þrjár rótgrónar verkfræðistofur sem allar voru stofnaðar á sjöunda áratug síðustu aldar; Hönnun hf., Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns hf. og Rafhönnun hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hinu nýja félagi.

Forstjóri hins nýja félags er Eyjólfur Árni Rafnsson en aðstoðarforstjórar þeir Runólfur Maack, erlend starfsemi og Skapti Valsson, innlend starfsemi.

„Sameiningin er gerð undir kjörorðinu „Samruni til sóknar.“ Með henni nást fram mikil samlegðaráhrif þar sem sérfræðiþekking félaganna skarast lítið. Úrval lausna á sviði verkfræði og tækni verður breiðara en þekkst hefur hér á landi og víðtæk sérþekking eykur mjög samkeppnishæfni sameinaðs félags. Það á bæði við um samkeppni á alþjóðlegum mörkuðum og við erlend fyrirtæki sem sækjast eftir verkefnum hér á landi. Á erlendum mörkuðum eru helstu sóknarfærin á þremur sviðum; jarðvarma, vatnsorku og áliðnaði,“ segir í tilkynningunni.

Starfsemi Mannvits skiptist í sex markaðskjarna en þeir eru: iðnaður, orka, byggingar, framkvæmdir og rannsóknir, umhverfi, samgöngur og veitur og upplýsingatækni.

Höfuðstöðvar Mannvits verða að Grensásvegi 1 í Reykjavík þar sem unnið er að því að  stækka og endurbæta húsnæðið. Stefnt er að því að taka nýjar höfuðstöðvar í notkun haustið 2009 en fram að því verður fyrirtækið einnig til húsa að Laugavegi 178 og Ármúla 42.

Mannvit rekur níu starfsstöðvar utan höfuðborgarsvæðisins en þær stuðla að sterkari og fjölbreyttari atvinnustarfsemi á landsbyggðinni. Þessar starfsstöðvar eru á Akranesi, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Kirkjubæjarklaustri, Hvolsvelli, Selfossi og í Reykjanesbæ.

Mannvit á hlut í nokkrum fyrirtækjum í tengdri starfsemi, þar á meðal HRV Engineering ehf., sem býr yfir sérhæfðri tækniþekkingu og reynslu í uppbyggingu álvera, Geysi Green Energy ehf., Vatnaskilum ehf., Loftmyndum ehf. og Skipaskoðun Íslands ehf.