Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum, með tilliti til hagsmuna ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Starfshóp ráðherra skipa Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, mun starfa með hópnum. Analytica verður einnig starfshópnum til aðstoðar.

„Bæði verða metin skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá,“ segir í tilkynningunni.

„Fjármála- og efnahagsráðuneytið birti greinargerð og minnisblað þegar ákvarðanir voru teknar um breyttar aðgerðir á landamærunum í júní og ágúst. Í ljósi þess að áhrifa faraldursins mun gæta a.m.k. næstu mánuði og að hann er síbreytilegur, bæði hérlendis og erlendis, þurfa viðbrögð stjórnvalda að vera í stöðugri endurskoðun. Mikilvægt er að unnin verði frekari greining á efnahagslegum kostnaði og ábata ólíkra sóttvarnaraðgerða og þeim valkostum sem helst kunna að koma til álita.“