„Fjármála- og efnahagsráðherra hefur tjáð mér að þessi ákvörðun feli ekki í sér vantraust til mín og mun það koma fram opinberlega. Ástæða ákvörðunarinnar er sögð vera sú að ríkisstjórnin hefur áhuga á að skoða breytingar á skipulagi yfirstjórnar bankans,“ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í orðsendingu sem hann hefur sent starfsmönnum seðlabankans í kjölfar þess að ákveðið hefur verið að auglýsa starf hans laust til umsóknar.

Már segir í orðsendingunni að fjármála- og efnahagsráðherra hafi borið að tilkynna sér fyrir lok dags á miðvikudag hvort hann hygðist auglýsa starfið laust til umsóknar ella hefði skipan hans framlengst í fimm ár í viðbót. Már hefur ekki tjáð sig að öðru leyti við fjölmiðla um málið en hann er nú á leið til Sidney í Ástralíu á fund Alþjóðagreiðslubankans með öðrum seðlabankastjórum.

Þarf að bíða og sjá

Í orðsendingunni segir Már að á næstu vikum muni skýrast betur hvernig staðið verður að ráðningunni og fyrirhuguðum breytingum á lögum um seðlabankann:

„Mér er tjáð að ekki standi til að ganga gegn sjálfstæði bankans né faglegri yfirstjórn.  Ég hef áður lýst því yfir að ég er tilbúinn að hefja nýtt tímabil sem seðlabankastjóri og sú yfirlýsing stendur. Verði hins vegar gerðar lagabreytingar sem fela í sér að eðli starfsins breytist eða breytingar verða á umsóknarferlinu sjálfu verð ég að leggja nýtt mat á málið. Það verður því að bíða og sjá og ekki má gefa sér fyrirfram hvort slíkar breytingar eru til hins verra eða betra enda eru góð orð um að sérfræðiþekking Seðlabankans verði nýtt í því ferli sem framundan er.“