Már Guðmundsson seðlabankastjóri sótti ársfund Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss (Bank for International Settlements - BIS) síðasta sunnudag, þ.e. 23. júní. Alþjóðagreiðslubankinn er hlutafélag í eigu sextíu seðlabanka og er vettvangur alþjóðlegs samstarfs seðlabanka, auk þess að vera rannsóknarsetur og banki fyrir seðlabanka heimsins. Á fundinum var lögð fram ársskýrsla BIS en í henni er auk reikninga bankans greinargerð um ástandið í heimsbúskapnum og fjallað er um þau viðfangsefni sem helst snúa að seðlabönkum. Már vann hjá BIS á árunum 2004 og var hann aðstoðarframkvæmdastjóri og staðgengill framkvæmdastjóra peningamála- og hagfræðisviðs bankans fram í júní árið 2009 þegar hann var ráðinn bankastjóri Seðlabanka Íslands.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að á fundinum á sunnudag hafi Jaime Caruana, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðagreiðslubankans, flutt ræðu sem byggðist á efni ársskýrslunnar. Í henni og ræðu aðalframkvæmdastjórans er lögð áhersla á að takmörk séu fyrir því hvað seðlabankar geta og eiga að gera og nú sé komið að öðrum stjórnvöldum að skapa forsendur varanlegs hagvaxtar.

Þá segir að í tengslum við ársfundinn var Sir Andrew Crockett, fyrrverandi aðalframkvæmdastjóra Alþjóðagreiðslubankans, minnst en hann lést á síðasta ári. Sir Andrew heimsótti Ísland í júní árið 2004 og hélt erindi á ráðstefnu sem Seðlabank Íslands skipulagði í samvinnu við samtökin SUERF. Haldinn var fyrsti fyrirlestur á vegum Alþjóðagreiðslubankans í nafni Sir Andrew Crockett. Það var Raghuram Rajan, prófessor við háskólann í Chicago, sem hélt þann fyrirlestur og fjallaði hann um óvenjulega peningastefnu í framhaldi af alþjóðlegu fjármálakreppunni sem hófst á miðju ári 2007. Einnig sótti seðlabankastjóri árlega ráðstefnu sem Alþjóðagreiðslubankinn heldur fyrir ársfund sinn og fjallaði hún að þessu sinni um hlutverk peningastefnunnar í efnahagskreppu og endurbata. Þá tók seðlabankastjóri þátt í umræðum á fundi lítilla ríkja með sjálfstæða mynt.