Stjórn Verðbréfaþjónustu Sparisjóðsins hf. og Már Wolfgang Mixa, framkvæmdastjóri, hafa komist að samkomulagi um að Már láti af starfi framkvæmdastjóra félagsins frá og með deginum í dag.

Stjórn VSP leitar nú að nýjum framkvæmdastjóra og er gert ráð fyrir að nýr stjórnandi taki við störfum innan tíðan. Fram að þeim tíma mun formaður stjórnar fyrirtækisins, Björn Ingi Sveinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar, veita félaginu forstöðu.