Már Guðmundsson og Margrét Kristmannsdóttir voru sæmd fálkaorðunni af Guðna Th. Jóhannessyni forseta við hátíðlega athöfn á Besstastöðum í dag.

Már, sem gegndi embætti seðlabankastjóra á árunum 2009-2019, fékk riddarakross fyrir störf í opinberri þágu. Margrét, sem var framkvæmdastjóri og fyrrverandi varaformaður Samtaka atvinnulífsins, fékk riddarakross fyrir framlag til íslensks atvinnulífs og opinberrar umræðu. Margrét er einnig framkvæmdastjóri Pfaff.

Tólf aðrir Íslendingar fengu fálkaorðuna í dag en það eru:

  • Dagný Kristjánsdóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á bókmenntum íslenskra kvenna og barnabókmenntum
  • Edda Jónsdóttir myndlistarmaður og galleristi, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu um kynningu og miðlun á íslenskri myndlist
  • Egill Eðvarðsson kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvöðlastörf í dagskrárgerð fyrir sjónvarp og framlag til íslenskrar kvikmyndagerðar
  • Felix Valsson svæfinga- og gjörgæslulæknir, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir forystu við innleiðingu nýrrar tækni á sviði lækninga og framlag til björgunarstarfa
  • Jón Kristinn Cortez tónlistarkennari og kórstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til kóratónlistar og forystu um útgáfu sönglaga eftir íslensk tónskáld
  • Lára Stefánsdóttir skólameistari, Ólafsfirði, riddarakross fyrir frumkvæði og nýsköpun á vettvangi framhaldsskóla
  • Ólafur Flóvenz jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi forstjóri Íslenskra orkurannsókna, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi rannsókna á íslenskum orkuauðlindum
  • Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur og formaður Fuglaverndar, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á íslenskum fuglum, ekki síst fálka og rjúpu, og miðlun þekkingar á því sviði
  • Páll Halldórsson flugstjóri, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til björgunar mannslífa og brautryðjandastörf á vettvangi landgræðslu
  • Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til að efla vitund um matarsóun, betri nýtingu og umhverfismál
  • Rósa Björg Jónsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir sjálfboðastörf í þágu Móðurmáls, samtaka um tvítyngi, við skráningu og miðlun barnabóka á öðrum tungumálum en íslensku
  • Þorbjörg Helgadóttir fyrrverandi orðabókarritstjóri við Árnasafn í Kaupmannahöfn, Nørre Broby í Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskra fræða

Fálkaorðan 17. júní 2021
Fálkaorðan 17. júní 2021
© Aðsend mynd (AÐSEND)