„Eins og nú horfir tel ég hins vegar ekki að vaxtabotninum hafi verið náð," sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs Íslands í morgun. Hann sagði seðlabankavexti í sögulegu lágmarki.

„Peningastefnunefnd telur eigi að síður að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til frekari lækkunar Seðlabankavaxta að því gefnu að gengi krónunnar haldist stöðugt og verðbólga hjaðni eins og spáð er. Hún gerir þó þann fyrirvara að óvissa sé um hversu svigrúmið er mikið vegna áforma um afnám hafta á fjármagnshreyfingar," sagði Már.

Verðbólguálag ríkisbréfa, eins og það er mælt af Seðlabankanum, hefði lækkað í framhaldi af vaxtaákvörðun á miðvikudaginn og væri nú til fimm ára nokkurn veginn jafnt verðbólgumarkmiði bankans. Væntingar til skemmri tíma gætu lækkað enn meira á næstunni enda gerði  verðbólguspá bankans ráð fyrir að verðbólga færi niður fyrir 2% þegar líður á næsta ár.

„Miðað við þessa mælikvarða eru virkir raunstýrivextir nú 2-2½%. Þetta eru lægri raunvextir en taldir voru jafnvægisraunvextir fyrir hrun og hugsanlega líka lægri en þeir sem munu ríkja þegar hagkerfið kemst aftur á beinu brautina. En meðan við erum á botni hagsveiflunnar er eðlilegt að raunvextir séu vel fyrir neðan það sem til lengdar mun gilda. Eigi að síður er ljóst að þegar vextir lækka frekar því minna verður svigrúmið sem eftir verður. Eins og nú horfir tel ég hins vegar ekki að vaxtabotninum hafi verið náð," sagði Már