Marel á í formlegum viðræðum við takmarkaðan fjölda alþjóðlegra banka um fjármögnun fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallar.

„Fyrirtækið stefnir að nýrri, stöðugri og hagkvæmari fjármögnun til lengri tíma litið. Slík fjármögnun auðveldar frekari samþættingu á starfsemi fyrirtækisins.

Fyrirhuguð fjármögnun er háð ákveðnum skilyrðum. Í tengslum við þetta ferli mun fyrirtækið hefja viðræður við skuldabréfaeigendur (MARL 06 1 og MARL 09 1) um hugsanlega uppgreiðslu bréfanna,“ segir í tilkynningu.