Ýmsar blikur eru á lofti í rekstarumhverfi fyrirtækisins, einkum miklar hækkanir á hráefni til matvælaframleiðslu og óróleiki á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel í kjölfar uppgjörs annars ársfjórðungs sem birtur var í dag.

„Enn sem komið er hafa áhrifin á rekstur félagsins verið óveruleg. Þetta ástand felur bæði í sér ógnanir og tækifæri. Erfitt er að spá fyrir um heildaráhrif þeirra á starfsemi fyrirtækisins ef þetta ástand varir lengi,“ segir í tilkynningunni.

Hörður Arnarson, forstjóri Marel segir í tilkynningu frá félaginu að eftir þrjár stefnumarkandi yfirtökur á síðastliðnum tveimur árum hafi félagið á þessu ári lagt áherslu á samþættingu félaganna, innri vöxt og bætta afkomu.

Hörður segir að sameinað fyrirtæki hafi stærð og styrk til að fylgja eftir vexti viðskiptavina inn á nýmarkaði Austur Evrópu, Suður-Ameríku og Asíu en í byrjun maí s.l. var kláraður formlegur samruni Marel og Stork Food Systems sem Hörður segir vera mikil tímamót í sögu fyrirtækisins.

„Marel Food Systems skilar á öðrum ársfjórðungi 9,5% rekstrarhagnaði sem hlutfall af sölu af kjarnastarfsemi og sýnir jafnframt sterkan innri vöxt,“ segir Hörður í tilkynningunni.

„Fyrstu sex mánuði ársins er rekstrarhagnaður sem hlutfall af sölu 8,7%, með sýnilegum bata á milli fjórðunga, sem er í samræmi við þau markmið um að ná 9% rekstrarhagnaði fyrir árið í heild og yfir 10% á næsta ári.“

Afkoma í samræmi við væntingar

Í tilkynningunni kemur fram að afkoma félagsins á öðrum ársfjórðungi er í samræmi við þær væntingar sem gerðar voru í lok fyrsta ársfjórðungs en þá var reiknað með að afkoma fyrirtækisins myndi batna umtalsvert þegar liði á árið.

„Samþætting þeirra fyrirtækja sem keypt hafa verið á undanförnum árum er farin að skila hluta af þeim samlegðaráhrifum sem stefnt var að. Próforma rekstrarhagnaður (EBIT) annars ársfjórðungs fyrir félagið í heild er 9,5% af veltu (8,7% fyrir fyrstu sex mánuði ársins), sem er í samræmi við yfirlýst markmið fyrirtækisins um 9% fyrir árið í heild,“ segir í tilkynningunni.

„Þó munu áhrif sameiningu Scanvaegt og Marel ehf undir nafni Marel, sem tilkynnt var á fyrsta ársfjórðungi, ekki byrja að skila sér að ráði fyrr en á þriðja ársfjórðungi og að fullu á fjórða ársfjórðungi,“ segir jafnframt.

Þá kemur einnig fram að vinna við samþættingu á Marel Food Systems og Stork Food Systems er að hefjast „en eins og áður hefur verið bent á er hún af allt öðrum toga en samþætting Marel og Scanvaegt,“ segir í tilkynningunni.

„Engin skörun er í vöruframboði fyrirtækjanna og því er mun minni einskiptiskostnaður við samþættinguna. Í upphafi er áhersla lögð á að ná fram samlegðaráhrifum með sameiginlegum upplýsingakerfum, innkaupum, framleiðslu og í markaðsstarfi, og er sú vinna þegar hafin.“