Marel Food Systems hf. [ MARL ] hefur gefið út nýja kauprétti í samræmi við starfskjarastefnu félagsins, samtals  11.200.000 hlutir.  Kaupréttum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og hluthafa til lengri tíma, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Hluti af samningum eru  við meðlimi framkvæmdastjórnar félagsins, þá Hörð Arnarson, forstjóra, Theo Hoen, aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra Stork Food Systems, Erik Kaman, fjármálastjóra og Lárus Ásgeirsson, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs og veita þeim kauprétt að hlutum sem greinir hér að neðan: Hörður Arnarson Nýr kaupréttur:3.000.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 3.000.000 Theo Hoen Nýr kaupréttur: 2.000.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 0 Erik Kaman Nýr kaupréttur:  1.500.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 0 Lárus Ásgeirsson Nýr kaupréttur: 500.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 500.000 Allir samningarnir veita rétt til kaupa á hlutum í Marel Food Systems hf. á útboðsgenginu 89 krónur á hlut og mun 50% verða nýtanlegir í ágúst 2011 og 50% í ágúst 2012. Engir söluréttir eru til staðar eða fjármögnun tengd kaupréttarsamningunum. Skilyrði fyrir nýtingu kaupréttar er að viðkomandi sé í starfi hjá  Marel Food Systems samstæðunni á nýtingardegi. Heildarfjöldi hluta í eigu framangreindra aðila og fjárhagslega tengdra aðila þeirra eru: Hörður Arnarson Bein eign að nafnverði: 1.669.009 Eign fjárhagslegra tengdra að nafnverði:  7.235 Theo Hoen Bein eign að nafnverði:  0 Eign fjárhagslegra tengdra að nafnverði:  0 Erik Kaman Bein eign að nafnverði: 0 Eign fjárhagslegra tengdra að nafnverði:  0 Lárus Ásgeirsson Bein eign að nafnverði: 0 Eign fjárhagslegra tengdra að nafnverði:  1.021.396 Heildarfjöldi hluta sem Marel Food Systems hf. hefur veitt kauprétt að eru 27.295.000.