Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 2,26% í tæplega 83 milljóna króna veltu með bréfin í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,99%.

Önnur breyting varð ekki á gengi hlutabréfa í dag.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,71% í Kauphöllinni og endaði vísitalan í 1.008,95 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 151,5 milljónum króna.