Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,47% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.139,09 stigum. Gengi bréfa Marels hækkaði um 1,15%, Icelandair um 0,38% og VÍS um 0,30%: Bréf Regins lækkuðu um 1,37% og Össurar um 1,23%.

Velta á hlutabréfamarkaði var, líkt og í gær, með minna móti eða tæpar 226 milljónir króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,12% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,24% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,17%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni.