Verð á hlutabréfum í Marel hækkuðu um 2,34% í 320 milljóna króna viðskiptum. Næst mest hækkun var hjá HB Granda en félagið hækkaði um 1,26% í 173 milljóna króna viðskiptum í dag.

Verð á hlutabréfum í Icelandair lækkaði mest í viðskiptum dagsins en það lækkaði um 1,81% í 34 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Skeljungur lækkaði næstmest eða um 1,7% í 148 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala Aðalmarkaðarins hækkaði um 0,10% í Kauphöllinni í dag. Heildarvelta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar nam 1,2 milljörðum króna.