Gengi bréfa í Marel hefur hækkað um 0,47% í 192 milljóna króna viðskiptum það sem af er degi. Gengi bréfa í fyrirtækinu lækkaði um rúm 8% í gær. Þá lækkun má rekja beint til þess að uppgjör félagsins fyrir fyrsta fjórðung var kynnt eftir lokun markaða í fyrradag. Það uppgjör olli fjárfestum vonbrigðum.

Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað um 0,59% í 210 milljóna króna viðskiptum í dag. Mun minni viðskipti hafa verið með bréf í öðrum félögum. Gengi bréfa í Marel lækkað um 0,92% í 40 milljóna króna viðskiptum.