Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 0,21% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa Marels hækkaði um 0,74%, Haga um 0,30% og Eimskips um 0,18%. Gengi bréfa Icelandair lækkaði aftur á móti um 0,72% og Regins um 0,54%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 359 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,30% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,41% og sá óverðtryggði um 0,02%. Velta í viðskiptum með bréf í vísitölunni nam 2,2 milljörðum króna.