Marel hagnaðist um 103 milljónir evra eða tæpa 16 milljarða króna á síðasta ári, sem er 6,8% samdráttur milli ára í evrum talið. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins. Markaðsaðstæður eru sagðar hafa verið krefjandi vegna umróts í tengslum við heimsfaraldurinn, en dreifing tekna samstæðunnar sé góð.

Tekjur námu rúmum 1,2 milljörðum evra, ígildi 191 milljarðs króna og drógust saman um 3,6% í evrum. Pantanir námu 193 milljörðum króna og jukust lítillega milli ára, og EBIT rekstrarhagnaður nam 26 milljörðum.

Á síðasta ársfjórðungi námu tekjurnar 53 milljörðum og hagnaðurinn 4,5 milljörðum. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 6 milljarða á síðasta fjórðungi.

Gengismunur var neikvæður um 2,8 milljarða samanborið við 300 milljóna jákvæðan gengismun árið áður.

Heildareignir námu 283 milljörðum króna um síðustu áramót og lækkuðu lítillega milli ára. Eigið fé nam 150 milljörðum og eiginfjárhlutfall því 53%. Stjórn félagsins mun leggja til að greiddir verði 6,4 milljarðar króna í arð fyrir síðasta rekstrarár.

„Horft um öxl, er mér efst í huga þakklæti til starfsmanna Marel, viðskiptavina okkar og samstarfsaðila sem allir hafa unnið að sama markmiði, að halda einni mikilvægustu virðiskeðju heims gangandi.

Á sama tíma og við höfum sett öryggi og velferð starfsmanna okkar og viðskiptavina í fyrsta sæti, höfum við mætt hverri áskorun með bjartsýni og þannig tryggt stöðugt framboð af öruggum og hagkvæmum matvælum sem eru framleidd á sjálfbæran hátt fyrir neytendur um heim allan.

Stafrænar lausnir og víðfeðmt sölu- og þjónustunet í öllum heimsálfum hafa á tímum heimsfaraldurs og ferðatakmarkana gert okkur kleift að þjónusta viðskiptavini í yfir 140 löndum. Skjótar ákvarðanir í byrjun árs lögðu grunninn að áframhaldandi nýsköpun og stöðugum rekstri. Við tryggðum hagstæða græna langtímafjármögnun fyrir félagið, við þéttum samstarf við birgja og fjárfestum í öryggisbirgðum af varahlutum og íhlutum, og fluttum allar hefðbundnar sölusýningar yfir á stafrænt form.

Við enduðum árið með afar góðum fjórðungi þar sem tekjur voru 343 milljónir evra og rekstrarframlegð var yfir 15%. Við nutum meðvindar frá kaupunum á TREIF, en vöru- og þjónustuframboð þeirra var hluti af uppgjöri Marel frá byrjun fjórða ársfjórðungs og hafði jákvæð áhrif á bæði tekjur og framlegð. Staða pantana var góð í árslok og fjárhagsstaða Marel er sterk með hreinar skuldir undir eins árs EBITDA-framlegð.

Afkoma ársins er vel ásættanleg þar sem hæst ber að mótteknar pantanir voru á pari við fyrra ár, en tekjur og rekstrarhagnaður lækkuðu um 4% á milli ára. Þjónustu- og varahlutatekjur hækkuðu nokkuð á milli ára og námu 40% af heildartekjum ársins.

Stafræn þróun er á ógnarhraða og betri nýting gagna og upplýsingatækni er nú þegar að umbylta virðiskeðju matvæla. Heimsfaraldurinn ýtir enn frekar undir fjárfestingar í sjálfvirkum, sveigjanlegum og sjálfbærum lausnum.

Marel hefur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og hefur fyrst félaga í okkar atvinnugrein skuldbindið sig til setja sér markmið í loftslagsmálum byggð á vísindalegum grunni (Science Based Targets) og birta framgang þeirra í reikningum félagsins í samræmi við alþjóðlega viðurkennda staðla (Task Force on Climate-Related Financial Disclosures - TCFD).

Gera verður ráð fyrir sveiflum á milli ársfjórðunga, sérstaklega nú á tímum umbreytinga og óvissu. Marel stendur sem fyrr við metnaðarfull markmið sín til meðallangs og lengri tíma, með áframhaldandi vexti og virðisaukningu,“ er haft eftir Árna Oddi Þórðarsyni, forstjóra félagsins.