Stjórn Marel Food Systems hf. ákvað á fundi sínum þann 6. maí 2008 að nýta heimild í samþykktum félagsins og hækka hlutafé Marel Food Systems hf. með sölu nýrra hluta að söluandvirði 117 milljónir evra.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fjöldi hluta sem seldir verða ræðst af gengi evru gagnvart íslenskri krónu og útboðsgengi, segir í tilkynningunni.

Tilkynnt verður um fjölda hluta sem boðnir verða til sölu og útboðsgengi í kjölfar stjórnarfundar í Marel Food Systems hf. sem áætlað er að halda þann 30. maí 2008.

Söluandvirði hlutafjárútboðsins verður nýtt til þess að greiða hluta af kaupverði Stork Food Systems.   Landsbanki Íslands hf. hefur sölutryggt útboðið með stuðningi Eyris Invest ehf. og  Grundtvig Invest ApS, sem eru meðal stærstu hluthafa í Marel Food Systems hf.

Hluthöfum í Marel Food Systems hf. og fagfjárfestum verður boðið að skrá sig fyrir nýjum hlutum í Marel Food Systems hf. Hluthöfum verður sent bréf með upplýsingum um áskriftarfyrirkomulag, auk þess sem Marel Food Systems mun gefa út lýsingu fyrir fyrsta söludag í útboðinu.   Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands hf. hefur umsjón með hlutafjárútboðinu.