Marel hefur keypt tvær milljónir hluta í sjálfu sér á genginu 128,5 og jafngilda viðskiptin 257 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Félagið á eftir viðskiptin 4.957.850 eigin hluti. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hefur á liðnum vikum tekið nokkuð stökk, en í byrjun september stóð gengið í 101 krónu á hlut. Nú stendur það hins vegar í 130 krónum á hlut.