Marel hefur keypt eina milljón hluti í sjálfu sér á genginu 101 og jafngilda viðskiptin því 101 milljón króna. Félagið á eftir viðskiptin 3.536.800 eigin hluti.

VB.is greindi frá því í morgun að gengi hlutabréfa í Marel hefur ekki verið lægra í fjögur ár og hefur virði hlutabréfanna rýrnað um nær 23% frá áramótum. Á síðustu fjórum árum fór gengi bréfanna hæst í tæplega 161 krónu á hlut en stendur nú í 101 krónu á hlut.