Marel hefur skrifað undir kaupsamning á 50% hlut í íslenska fiskvinnsluvélaframleiðandanum Curio en greint var frá kaupunum samhliða birtingu Marel á uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung. Samkvæmt tilkynningu verða kaupin gerð í tveimur áföngum. 40% hlutur verður afhentur þegar skilyrði kaupsamnings hafa verið uppfyllt og 10% til viðbótar þann 1. janúar 2021.

Marel eignast jafnframt kauprétt á eftirstandandi 50% hlut eftir fjögur ár. Elliði Hreinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Curio, mun áfram leiða fyrirtækið. Búist er við að rekstrarhagnaður Curio hafi jákvæð áhrif á EBIT framlegð fiskiðnaðar Marel við samstæðuuppgjör eftir þann 1. janúar 2021.

Curio var stofnað árið 2008 og sérhæfir sig í nýstárlegum lausnum fyrir hausun, flökun og roðflettingu hvítfisks. Aðalmarkaður Curio er Evrópa, með áherslu á Norðurlönd og Bretland. Árlegar tekjur félagsins eru um 10 milljónir evra. Þá hlau fyrirtækið Nýsköpunarverðlaun Ísland s síðastliðinn mánudag.

Í tilkynningu er haft eftir Árni Oddi Þórðarsyni forstjóra Marel:

"Við erum mjög spennt að taka höndum saman með Curio, framleiðanda hátækni fiskvinnsluvéla fyrir frumvinnslu hvítfisks. Kaupin færa okkur nær markmiðum okkar að bjóða upp á heildarlausnir fyrir fiskvinnslu á heimsvísu. Síðustu ár hafa Marel og Curio unnið saman að heildarlausnum fyrir mörg af framsæknustu fiskvinnslufyrirtækjum heims með góðum árangri. Með því að bjóða upp á heildarlausnir, framleiðsluhugbúnað og áreiðanlega viðhaldsþjónustu hjálpum við viðskiptavinum okkar að sjálfvirknivæða vinnslur sínar og stuðlum að samfelldu flæði milli vinnslustiga sem tryggir verðmætari og öruggari vörur fyrir viðskiptavini á heimsvísu."

Þá segir Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri Curio:

"Ég tel þetta frábærar fréttir fyrir viðskiptavini fyrirtækjanna þar sem samlegðaráhrif munu klárlega auka vöruúrval og gefa vöruþróun byr undir báða vængi. Ég hlakka mikið til samstarfsins og hef miklar væntingar til sameiginlegrar vöruþróunar."