Marel keypti í dag 154 milljóna króna hlut í sjálfu sér. Keyptir voru 1.100.000 hlutir á genginu 140. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að kaupin séu gerð til að mæta skilyrðum um framkvæmd kaupréttarsamninga.