Rauður dagur var í Kauphöllinni í dag en alls lækkuðu 15 félög á markaði í dag. Aðeins tvö félög hækkuðu og voru það Kvika og Icelandair. Icelandair hækkaði um 1,77% í 174 milljóna króna viðskiptum.

Marel lækkaði mest eða um 2,8% í 907 milljóna króna viðskiptum. Arin lækkaði næstmest eða um 2,46% í 142 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á Aðalmarkaði nam 2,9 milljörðum króna og hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,76%.