Marel
Marel
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Hlutabréfaverð í Marel hefur fallið um 3,15% í viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Velta með bréfin nemur um 270 milljónum og viðskipti 19 talsins. Í júlímánuði nam velta með bréf Marels alls um 585 milljónum króna. Gengi bréfanna er nú 123 krónur á hlut.

Icelandair Group og Össur hafa lækkað lítillega í dag. Icelandair hefur lækkað um 0,2% og velta með bréf félagsins um 40 milljónir króna. Lækkun á bréfum í Össuri nemur 0,5% og hafa viðskiptin verið lítil, alls fyrir um 4 milljónir króna.