Verð á hlutabréfum í Marel hækkaði mest í Kauphöllinni í dag eða um 1,12% í 965 milljóna króna viðskiptum. Næst mest hækkaði TM eða um 0,63% í 14 milljóna króna viðskiptum. Bréf þessara félaga voru þau einu sem hækkuðu í viðskiptum dagsins. Gengi annarra félaga ýmist lækkaði eða stóð í stað.

Mest lækkun var hjá Högum en félagið lækkaði um 2,24% í 62 milljóna króna viðskiptum. Næst mest lækkaði Heimavellir um 2,01% í 185 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta nam 2,2 milljörðum en þar af var langmest velta með bréf Marels. Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 0,01% í viðskiptum dagsins.