Stjórn Marel Food Systems ætlar að bjóða út 20-30 milljónir hluta í lokuðu hlutafjárútboði til hæfra fjárfesta til að styrkja enn frekar fjárhag félagsins og auka viðskipti með hlutabréf þess.

Verð á þessum nýju hlutum verður á bilinu 70-72 kr. á hlut.

Félagið aflar sér því 1,5-2,0 milljarða króna með þessu. Útboðið hefst í dag og lýkur á fimmtudag.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.