Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,0% í rétt liðlega 2 milljarða viðskiptum dagsins og fór hún niður í 1.616,29 stig. Aðalvísitala Skuldabréfa lækkaði um 0,10% í 1.363,02 stig í tæplega 5 milljarða viðskiptum dagsins.

Gengi bréfa Marel lækkaði mest, eða um 1,73% í 768 milljón króna viðskiptum sem jafnframt voru mestu viðskiptin með einstakt fyrirtæki í kauphöllinni. Gengi bréfanna stendur nú í 312,50 krónum. Næst mest lækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 1,66% í 260 milljón króna viðskiptum og fór það niður í 14,80 krónur hvert bréf.

Einu bréfin sem hækkuðu í kauphöllinni voru bréf Nýherja, í rétt um milljón króna viðskiptum, nam hækkunin 0,57% og fór gengið í 26,55 krónur.