Marel hefur náð samkomulagi um sölu á sögunarkerfiseiningu félagsins í Bornholm í Danmörku, sem er starfrækt undir merkjum Scanvaegt Norfo, til Nienstedt G.m.b.H. Kaupverðið er trúnaðarmál að ósk Nienstedt G.m.b.H.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Salan kemur til með að hafa lítil áhrif á veltu og hagnað Marel Food Systems fyrir árið 2008 en er engu að síður mikilvægur liður í viðleitni félagsins til að einbeita sér að kjarnastarfsemi þess,“ segir í tilkynningunni.

Sölusamningurinn kveður á um að Nienstedt G.m.b.H. þjóni þeim Norfo sögunarkerfum sem eru þegar í notkun. Samningurinn nær aðeins til starfsemi Marel sem lýtur að Norfo sögunarkerfunum.

Öll önnur starfsemi félagsins sem tengist skurði, hvort sem er í Bornholm, Árósum eða Garðabæ, heldur áfram óbreytt samkvæmt tilkynningunni.

„Við sameiningu Marel og Scanvaegt höfum við haft eflingu þróunarstarfs okkar, sem og arðsemi kjarnastarfseminnar, að leiðarljósi. Sögunarkerfin passa einfaldlega ekki við þær áherslur. Með þessari sölu höfum við stigið mikilvægt skref og getum nú einbeitt okkur enn betur að kjarnastarfsemi fyrirtækisins,”segir Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf.