Marel hefur gengið frá samkomulagi um sölu á starfsemi sinni í háhraða skurðartækni (High Speed Slicing) sem staðsett er í Norwich, Bretlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar.

Fram kemur í tilkynningunni að aðrir vöruflokkar sem heyra undir starfsemi félagsins í Norwich, þ.e. mótunarvélar (frozen portioning) og þjarkar (robotics) séu ekki hluti af sölunni, þar sem þeir falli undir kjarnastarfsemi Marel og styðji við vöruframboð og stefnu félagsins.

„Salan er mikilvægt skref í áætluninni um einfaldara og skilvirkara Marel og styður þá stefnu félagsins að endurskoða vöruframboð með það að markmiði að auka slagkraftinn á þeim sviðum þar sem félagið hefur skýrt samkeppnisforskot og sterka markaðsstöðu. Starfsemin í háhraðaskurðartækni veltir árlega um 10 milljónum evra,“ segir í tilkynningu félagsins.

Kaupandinn er Middleby Corporation og er áætlað að gengið verði frá sölunni að fullu fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2015.