Marel hefur greint frá því að félagið hafi selt eignir utan kjarnastarfsemi fyrir 37,5 milljónir evra. Þær eignir sem hér um ræðir eru annars vegar fasteignir og lóðaréttindi í Amsterdam, sem áður tilheyrðu Food & Dairy hluta Stork Food Systems, og hins vegar Scanvaegt Nordic A/S sem starfar utan matvælageirans.

Marel Food Systems notar söluandvirði  til að auka sjóðsstöðu og greiða niður skammtímaskuldir.  Af 37,5 milljóna söluandvirði eru 35 milljónir evra staðgreiddar´segir í tilkynningu.

Söluandvirði eignanna er að fullu í samræmi við upphafleg markmið stjórnenda. Yfir 10 milljóna evru söluhagnaður bókast við söluna sem nánar verður gerð grein fyrir við birtingu uppgjörs félagsins 6. maí n.k.

Marel Food Systems hefur áður tilkynnt að til stæði að selja 2-4 eignir utan kjarnastarfsemi félagsins á yfirstandandi ári.  Stefnt er að því að afla samtals yfir 50 milljónir evra, með óverulegum heildaráhrifum á rekstrarhagnað, sem koma til aukningar á sjóðsstöðu og lækkunar á skammtímaskuldum.  Við sölu nú fást 35 milljónir evra staðgreiddar. Sala á rekstri Food & Dairy er í vinnslu auk þess sem sala á 1-2 eignum til viðbótar eru til skoðunar.

„Í kjölfar sameiningar Marel og Stork Food Systems á síðasta ári tilkynntum við að aukin áhersla yrði lögð á að bæta arðsemi og innri vöxt í kjarnastarfsemi.  Kjarnastarfsemi okkar felst í þjónustu og sölu á hátæknilausnum fyrir kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnað.  Við erum í einstakri stöðu til þess að sinna þörfum ört vaxandi viðskiptavina okkar á heimsvísu," segir Theo Hoen, forstjóri Marel Food Systems hf. í tilkynningu.

Kaupandi Scanvaegt Nordic rekstrarins er Grundtvig fjölskyldan sem stofnaði Scanvaegt á árinu 1932.  Heildarvelta Scanvaegt Nordic á síðasta ári var ríflega 31,2 milljónir evra með 2,9 milljónir EBIT hagnað.

Marel Food Systems keypti Scanvaegt í ágúst 2006 og greiddi stóran hluta kaupanna með hlutafé.  Meginhluti af starfsemi Scanvaegt er þjónusta við matvælaiðnaðinn og hefur sá hluti rekstrarins verið sameinaður að fullu Marel Food Systems. Grundtvig fjölskyldan er í hópi stærstu hluthafa Marel Food Systems og hefur stutt félagið til frekari vaxtar.  Eignarhlutur Grundtvig Invest er 10,6% í Marel Food Systems og situr Lars Grundtvig í stjórn félagsins.

Marel Food Systems hefur selt fasteignir við Ketelstraat í Amsterdam, en þar var áður rekstur Food & Dairy hluta Stork Food Systems BV.  Starfsemi Food & Dairy hefur þegar verið flutt í annað húsnæði í Amsterdam.  Salan fór fram með lokuðu útboði þar sem nokkrir valdir fasteignafjárfestar tóku þátt.

Söluandvirði eignanna, sem innifela fasteignir, lóðir og leigusamninga, eru í fullu samræmi við væntingar stjórnenda Marel Food Systems, að teknu tilliti til staðsetningar, ástands eignanna og ríkjandi efnahagsástands segir í tilkynningu.