Marel hefur skrifað undir samning við kínverska fiskvinnslufyrirtækið Pacific Andes um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á nýju vinnslukerfi fyrir hvítfisk. Verður línan sett upp í vinnslustöð fyrirtækisins í Qingdao. Kerfið er byggt á nýrri hönnun og er leitt af Marel í samvinnu við Skagann á Akranesi og 3X Technology. Kerfið spannar m.a. uppþíðingu,meðhöndlun fiskikerja, kælingu, flokkun og snyrtingu og uppfyllir hæstu kröfur um gæðaeftirlit og rekjanleika.

„Þetta er fyrsta uppsetning á nýrri flæðilínu sem er hönnuð til að hámarka sjálfvirkni í afkastamiklum vinnslustöðvum á hvítfiski eins og Alaska ufsa og eldishvítfiski eins og tilapia og pangasius,“ útskýrir Kristmann Kristmannsson, sérfræðingur í fiskiðnaðarsetri Marel. „Náið samstarf Marel við Skagann og 3X Technology hefur gert okkur kleift að samþætta sérþekkingu þessara fyrirtækja og afhenda heildarlausn sem uppfyllir ströngustu kröfur viðskiptavinarins.

Væntanlegur ávinningur fyrir Pacific Andes felst m.a. í auknum gæðum, afköstum, lægri framleiðslukostnaði, hraðara gegnumstreymi og markvissari stjórnun á hitastigi vinnslunnar, sem dregur úr hættunni á bakteríusýkingum og gerir fyrirtækinu kleift að keppa á mörkuðum eins og í Ameríku og Evrópu. Þar að auki bætir línan vinnuaðstöðu starfsfólks verulega,“ segir Kristmann. „Marel hefur markvisst verið að byggja upp sterkt teymi í Kína á undanförnum árum og hefur einkum lagt áherslu á hvítfisk í norðurhluta landsins og eldisfisktegundir eins og tilapia í suðurhlutanum. Þessi samningur markar tímamót í þeirri vinnu og við erum virkilega ánægð með að vera að vinna að svo spennandi verkefni með fyrirtæki á borð við Pacific Andes, sem er eitt af allra stærstu fiskvinnslufyrirækjum heims,“ segir Kristmann að lokum.

Fiskvinnsla í Kína hefur hingað til byggt að verulegu leyti á mannafli. Meðal fiskvinnslufyrirtæki í Kína er með 4.000-12.000 manns í vinnu. En nú þegar hagkerfið er í hröðum vexti stendur greinin frammi fyrir aukinni samkeppni um vinnuafl. Uppsetningin í Qingdao er fyrsta skrefið í átt að fullri vélvæðingu og sjálfvirkni fyrir stærstu hvítfiskvinnslustöð Kína. Pacific Andes hefur þegar kynnt áform um að uppfæra búnaðinn í öðrum vinnslustöðvum fyrirtækisins með svipuðum lausnum frá Marel ef línan í Qingdao reynist vel.