Marel [ MARL ] hefur gert samning við Glitni [ GLB ] um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands samkvæmt tilkynningu.

Glitnir skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands, í hlutabréf Marel að lágmarki 200.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%.

Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 100.000.000 að markaðsvirði samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.