Marel Food Systems hf. hefur gert samning við Nýja Glitni banka hf. (Glitnir) um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar kemur fram að tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöllinni.

Glitnir skuldbindur sig til  að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll í hlutabréf Marel að lágmarki 200.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%.

Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 50.000.000,- að markaðsvirði.

Samningurinn tekur gildi í dag, er ótímabundinn en uppsegjanlegur með tveggja vikna fyrirvara.