Vegna hlutafjáraukningar Marel sem áætlað er að eigi sér stað 5. og 6. júní, mun Kauphöllin fjarlægja bréf Marel tímabundið úr Úrvalsvísitölunni í samræmi við reglur um samsetningu og viðhald Úrvalsvísitölunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Bréf Marel verða fjarlægð úr Úrvalsvísitölunni á réttindaleysisdeginum (e. ex-date), 29. maí 2008. Bréfunum verður að nýju bætt inn í Úrvalsvísitöluna þann 30. maí 2008, svo lengi sem nýtt verð hafi myndast á réttindaleysisdeginum.