Marel hefur undirritað viljayfirlýsingu við hollenska fjárfestingasjóðinn Nimbus varðandi sölu á Stork Food and Dairy Systems, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel til Kauphallarinnar en stefnt er að því að ljúka viðskiptunum fyrir árslok.

„Marel er þess fullvisst að Stork Food and Dairy Systems verði í góðum höndum hjá Nimbus,“ segir í tilkynningunni.

„Hvað Marel varðar væri með sölunni stigið jákvætt skref í þá átt að auka enn frekar áherslu á kjarnastarfsemi fyrirtækisins.“