Marel hefur velt Össuri af stalli sem verðmætasta fyrirtæki Kauphallarinnar. IFS Greining segir frá í Morgunpósti sínum í dag.

Markaðsverðmæti Marels nam 91,5 milljörðum króna eftir lok viðskipta í gær og hafði aukist um 19 milljarða frá ársbyrjun. Gengi hlutabréfa Marels hefur hækkað um fjórðung það sem af er ári.

Markaðsverðmæti Össurar stóð í 88,5 milljörðum króna í gær. Gengi félagsins hefur lækkað um 4% á árinu.