Margrét Gunnlaugsdóttir, sem áður starfaði sem vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já, sviðsstjóri þjónustu- og ráðgjafasviðs hjá Wise og rekstrarstjóri tækniþjónustu hjá Íslandsbanka, hefur verið ráðinn til Advania. Þar verður hún forstöðumaður vöru- og viðskiptaþróunar rekstrarlausna fyrirtækisins.

Margrét er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið PMD stjórnendanámi í Háskólanum í Reykjavík.

Viðskiptavinum Advania í rekstrar- og hýsingarþjónustu hefur fjölgað verulega á undanförnum árum segir í fréttatilkynningu frá félaginu og verður hlutverk Margrétar að vinna að því að bæta enn frekar upplifun viðskiptavina af þessari þjónustu fyrirtækisins.