Á þessu ári hafa innlagnir skráninganúmera ökutækja aukist stórlega borið saman við undanfarin ár.

Þetta kemur fram á vef Umferðarstofu en þar kemur fram að fram til þessa hafa eigendur árstíðabundinna ökutækja lagt skráningarnúmer þeirra inn til geymslu á veturna til þess að fá felld niður opinber gjöld og eftir atvikum tryggingar. Á þetta fyrst og fremst við um ökutæki sem eru notuð mest yfir sumartímann, líkt og húsbifreiðar, fornbifreiðar og bifhjól.

Alls voru 5.239 skráningarnúmer lögð inn í september á þessu ári á meðan 2.158 voru lögð inn til geymslu í fyrra en þetta er 242% aukning á innlögnum skráningarnúmera á milli ára.

Þegar yfirlit yfir innlagnir og úttektir skráningarnúmera er skoðað kemur þessi árstíðabundna sveifla í ljós, þ.e. innlagnir aukast á haustmánuðum og úttektir á vormánuðum. Hins vegar er umtalsverð aukning á innlögn númera í september á þessu ári borið saman við undanfarin tvö ár.

Umferðarstofa segir rekja megi þessa miklu aukningu til breyttra skoðunarreglna sem tóku gildi fyrr á þessu ári og fólu í sér að skylt er að skoða svonefndra ferðavagna, þ.e. hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi. Skoðun þessara ökutækja er nú áskilin fyrir 1. ágúst á skoðunarári og skal henni lokið fyrir 1. október á skoðunarári.

Með því að leggja númer þessara ökutækja inn til geymslu geta eigendur ökutækjanna komið í veg fyrir að 15 þúsund króna vanrækslugjald yrði lagt á óskoðuð ökutækin. Í raun er þó um frest að ræða því þegar eigandi ökutækisins hyggst taka það aftur í notkun verður hann að byrja á að láta skoða ökutækið. Hjá Umferðarstofu er hægt að fá akstursheimild til einnar viku eftir að númerin eru tekin út en ef ekki er búið að skoða ökutækið innan þess frest leggst vanrækslugjald á það.