Laun á Íslandi hafa hækkað þrefalt meira en á Norðurlöndum síðustu þrjú ár. Á árabilinu 2010 til 2012 hækkuðu laun á Íslandi um 21,5% en til samanburðar hækkuðu laun á Norðurlöndum að meðaltali um 8,7% á þessum þremur árum.  Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD og eru niðurstöður úr skýrslunni unnar af starfsfólki Samtaka atvinnulífsins og birt á vef samtakanna.

Á vef SA segir jafnframt:

„Í Evrópusambandinu hækkuðu laun að meðaltali um 5,1% og í OECD-ríkjunum um 6,5%. Ísland sker sig úr öðrum ríkjum hvað varðar miklar launahækkanir og háa verðbólgu. Olíuríkið Noregur kemur næst Íslandi í launahækkunum en þar ríkir mikil þensla á vinnumarkaði og eftirspurn eftir starfsfólki," segir í frétt á vef SA.

Þá er birt tafla þar sem sjá má yfirlit yfir launahækkanir á Norðurlöndum, í ríkjum ESB og OECD 2010-2012 (í bláum lit). Athugið að tölur fyrir 2013 og 2014 eru spár OECD (í gulum lit).

Launahækkanir á Norðurlöndum, í ríkjum ESB og OECD árin 2010 til 2012
Launahækkanir á Norðurlöndum, í ríkjum ESB og OECD árin 2010 til 2012
© Aðsend mynd (AÐSEND)