Margfeldiskosningu verður beitt við stjórnarkjör á aðalfundi Skeljungs á fimmtudaginn næsta en alls hafa sex boðið sig fram í stjórn félagsins. Margfeldiskosningin kemur til vegna kröfu sem barst stjórn félagsins frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 10% hlutafjár, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.
Framboðsfrestur til stjórnar Skeljungs er runnin út og gáfu eftirfarandi sex aðilar kost á sér í stjórnina:
- Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður
- Birna Ósk Einarsdóttir, varaformaður stjórnar
- Dagný Halldórsdóttir, stjórnarmaður
- Þórarinn Arnar Sævarsson, stjórnarmaður
- Nanna Björk Ásgrímsdóttir
- Sigurður Kristinn Egilsson
Elín Jónsdóttir, forseti lagadeildar Bifrastar, situr einnig í stjórn Skeljungs en hún gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Tilnefningarnefnd olíufyrirtækisins lagði til að Sigurður Kristinn tæki hennar stað í stjórninni.
Sjá einnig: Tilnefna Sigurð umfram Nönnu Björk
Í skýrslu tilnefningarnefndar kemur fram að sú reynsla og þekking sem Nanna Björk býr yfir sé að finna í núverandi stjórn í meira mæli en reynsla og þekking Sigurðar Kristins.
„Þrátt fyrir að þau myndu bæði styrkja stjórnina telur nefndin, að virtu heildarmati á öllum frambjóðendum, að það yrði meiri virðisauki fyrir félagið að fá Sigurð Kristinn í stjórn til viðbótar við þá fjóra stjórnarmenn sem gefa áfram kost á sér,“ segir í skýrslunni.
Tilnefningarnefnd Skeljungs skipa Katrín Óladóttir, Sigurður Kári Árnason og Þórarinn Arnar Sævarsson stjórnarmaður. Katrín og Sigurður verða sjálfkjörin til áframhaldandi setu í nefndinni en nýkjörin stjórn félagsins skipar einn úr stjórn í nefndina í kjölfar aðalfundar.