Ráðgjafafyrirtækið Boston Consulting Group skilaði í vikunni tillögum að náttúrupassa og hugsanlegri leið til að skipta tekjum af slíkum passa á milli aðila í ferðaþjónustunni.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, vonast til að frumvarp um náttúrupassa verði lagt fyrir þingið í byrjun næsta árs.