Alls var 559 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í júlí sl., sem er rúmlega 13% fjölgun samninga á milli mánaða en fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hefur sveiflast nokkuð frá því í vor.

Þá var 790 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í júlí sem þýðir fjölgun samninga um tæp 9% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er mesti fjöldi leigusamninga frá því í janúar en leigusamningum fækkaði nokkuð á fyrstu mánuðum ársins líkt og fyrri ár. Fjöldi leigusamninga náði þó hámarki í september í fyrra þegar rúmlega 1.550 samningum var þinglýst.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur seinna um haustið og á fyrstu mánuðum ársins.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 790 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í júlí sl., samanborið við 726 samninga í júní. Samningum í júlí fækkar um 6% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 84 samningum. Þá var 65 samningum þinglýst á Norðurlandi, 36 samningum á Vesturlandi og 35 samningum á Suðurlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 2 samningum var þinglýst þar í júlí. Þá var 9 samningum þinglýst á Austurlandi.